Omnis semur við HP um samstarf

Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Omnis ehf náði  á dögunum  samningi við Hewlett-Packard (HP) sem veitir fyrirtækinu stöðu sem svokallað HP Preferred Partner í sölu og þjónustu á tölvubúnaði frá fyrirtækinu.  Omnis er fyrsta fyrirtækið á Íslandi, fyrir utan Opin kerfi, sem nær eins viðtækum samningi við HP. Eggert Herbertsson framkvæmdastjóri Omnis segir þetta  mikilvægt skref fyrir fyrirtækið,  sem færi því   beinan aðgang að sérstökum tilboðum,  markaðsstuðningi og þjónustu hjá HP. Omnis getur nú staðið enn betur að kynningu á HP vörum og boðið sérstök afsláttarverð í stærri verkefnum. Til að ná þessari stöðu hjá HP, þurfti  Omnis að  uppfylla ströng skilyrði um veltu og þá þurftu starfsmenn fyrirtækisins að ljúka fjölda sérhæfðra námskeiða hjá HP. „Það  er ákaflega mikilvægt fyrir okkur að geta boðið viðskiptavinum okkar góða ráðgjöf og þjónustu á bestu verðum. Lausnir frá HP hafa alltaf verið mikilvægar í vöru- og þjónustuframboði Omnis. Við höfum lagt á það mikla áherslu að fá vottanir frá okkar birgjum og samstarfsaðilum og er þetta mjög stórt skref í þeirri vinnu“ segir Eggert ennfremur.
 
Opin kerfi koma að þessu samstarfi sem dreifingar- og þjónustuaðili HP á Íslandi, en Omnis og Opin kerfi hafa átt mikið og farsælt samstarf á undanförnum árum. Það samstarf mun vaxa áfram  með þessum samningi.  Pétur Bauer framkvæmdastjóri  heildsölu og dreifingu hjá Opnum kerfum segir þetta vera heilladrjúgt skref  bæði fyrir Omnis og Opin kerfi.  „Með þessu fáum við fleiri aðila til að halda merkjum HP á lofti  og þekking á lausnum frá HP eykst til muna. Omnis hefur verið góður samstarfsaðili í mörg ár og mun það samstarf styrkjast enn frekar við þetta skref“ segir Pétur.
 
Christina Kuhnel, HP Partner Business Manager segir  samninginn samræmast markmiðum HP um fjölgun  samstarfsaðila sem hafa besta þekkingu á HP lausnum og skýra stefnu um að bjóða vöru HP á markaðnum.„Starfsmenn Omnis hafa staðið sig vel í fjölda ára við sölu- og þjónustu á lausnum við HP og þetta samkomulag er  rökrétt framhald af því samstarfi.“

Skilmálar

ATHUGIÐ: Þó svo að starfsmenn Omnis leggja í hvívetna fram við að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar áskiljum við okkur fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.