Omnis býður nú skrifstofu- og skólavörur í samstarfi við A4

Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Omnis, sem hingað til hefur lagt áherslu á tölvur og tengdar vörur, hefur nú ákveðið auka vöruframboð sitt verulega. Með nánu samstarfi við A4, sem sérhæfir sig í öllum vörum til skrifstofu- og skólahalds, býður Omnis nú fyrirtækjum og heimilum  mikið vöruúrval í skrifstofu- og skólavörum. Reyndar hefur verslun Omnis  í Borgarnesi ætíð sinnt þessum markaði mjög vel en nú hafa verslanir Omnis á Akranesi og Reykjanesbæ tekið stóran hluta verslunarrýmisins undir lykilvörur í þessum vöruflokki.

Bjarki Jóhannesson sölu- og markaðsstjóri Omnis ehf. segir að A4 hafi boðið mjög samkeppnishæf verð á þessum markaði og þannig muni það einnig verða í Omnis. „Við höfum alla tíð lagt áherslu á góð verð og góða þjónustu. Fyrirtæki og stofnanir fá sínar pantanir afhentar upp að dyrum sé þess óskað, þeim að kostnaðarlausu. Um þessar mundir erum við að dreifa yfirgripsmiklum vörulista til allra fyrirtækja og stofnana á okkar þjónustusvæði Þetta er mikið rit sem nýtist þeim sem kaupa inn þessar vörur mjög vel til að velja það sem vantar hverju sinni og fá sent heim að dyrum“ segir Bjarki Jóhannesson

Verslanir Omnis

Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík

Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi

Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi

Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ

Skilmálar

ATHUGIÐ: Þó svo að starfsmenn Omnis leggja í hvívetna fram við að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar áskiljum við okkur fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.