Omnis er endursöluaðili á öllum Microsoft hugbúnaði hvort sem um er að ræða hilluvörur eða rafræn leyfi.
Tæknimenn Omnis veita ráðgjöf við val á hugbúnaði hvort sem það eru viðskiptalausnir, kerfisstjóralausnir eða rekstrar- og öryggislausnir.
Opinn hugbúnaður
Oft á tíðum getur verið hagkvæmast og besta leiðin að nota lausnir sem byggja á opnum hugbúnaði. Það á sérstaklega vel við núna þegar öll fyrirtæki og stofnanir leita leiða til að spara. Omnis hefur áralanga reynslu af uppsetningum og rekstri á upplýsingakerfum sem byggja á opnum hugbúnaði. Dæmi um lausnir sem Omnis hefur innleitt fyrir viðskiptavini og í eigin rekstri eru:
- Asterisk símkerfið
- Open Office sem kemur í staðinn fyrir Microsoft Office pakkann á útstöðvum.
- Zimbra póstþjóninn
- SAMBA netþjóninn
- SugarCRM - kerfi til að halda utan um viðskiptatengsl og samskipti
- Joomla netumsjónarkerfið
- Nagios/MRTG/Syslog vöktunarkerfin




