Hýsingarþjónusta Omnis - fyrsta flokks öryggi, sveigjanleiki og frábær verð.
Hýsingarþjónsta Omnis er staðsett í ISO 27001 vottuðu gagnaveri TDC, við aðstæður eins og þær gerast bestar hér landi. Þjónustuframboðið er breitt og því hægt að sníða lausnir að þörfum þíns fyrirtækis. Fáðu tilboð hjá söluráðgjöfum Omnis.
Hýsing og leiga á netþjónum
Viðskiptavinum býðst bæði að hýsa eigin búnað hjá Omnis gegn föstu mánaðargjaldi sem og að leigja allan nauðsynlegan búnað.
Sýndarnetþjónar
Omnis býður einnig leigu á sýndarnetþjónum. Viðskiptavinur getur valið um fjölda örgjörva, stærð minnis og stærð gagnasvæðis.
Hýsing á einstökum kerfum
Omnis býður upp á hýsingu á einstaka kerfum, s.s. DK- viðskiptahugbúnaði, Stólpa og fleira. Slíkt getur verið hentugt þegar rekstraröryggi innan fyrirtækisins er takmarkað eða þegar auka þarf aðgengi utanaðkomandi aðila að kerfunum. Aðgengi er þá veitt í gegnum terminal þjónustu.
Gagnasvæði
Fyrirtæki í gagnahýsingu greiða mánaðarlegt gjald m.v. það gagnamagn sem hýst er hjá Omnis hverju sinnu. Omnis býður upp á miðlægt umhverfi fyrir hvert og eitt fyrirtæki þar sem hægt er að stýra aðgangi starfsmanna að gögnum.
Póstþjónusta
Exchange póstþjónusta Omnis byggir á Microsoft Exchange 2010 póstþjónum. Með þessum hætti geta viðskiptavinir Exchange póstþjónustu nýtt Microsoft Outlook til að gera miklu meira í tölvupóstskerfinu en áður eins og að deila dagbókum, tengiliðum, verkefnalistum og fleira.
Afritunarþjónusta
Omnis á og rekur fyrirtækið Vefafritun sem séhæfir sig í öryggisafritun gagna yfir internetið. Afritun yfir internetið er einföld og örugg leið til að vernda gögn þíns fyrirtækis. Afrit er tekið með öruggum og sjálfvirkum hætti yfir internetið og geymt á öruggum stað í gagnamiðstöð fjarri frumgögnunum (sem aftur er afritað á þriðja staðinn). Ef þú lendir í vandræðum með gögnin þín, þá ertu örugg(ur) um að geta endurheimt þau með einföldum hætti. Hafðu samband við söluráðgjafa Omnis og fáðu verð í afritunarþjónustu Omnis. Nánari upplýsingar á heimasíðu Vefafritunar www.vefafritun.is.
Vírusvarnarþjónusta
Eitt af því mikilvægara sem fyrirtæki þurfa að passa upp á í tölvuumhverfi sínu er að tryggja að vírusar og önnur skyld óværa komist ekki inn í tölvur notenda. Omnis býður fyrirtækjum vírusvarnarþjónustu, sem er einföld og örugg leið til að verja tölvur gegn vírusum. Felst þjónustan í miðlægri dreifingu uppfærslna á vírusvörnum inn á þær tölvur sem eru í þjónustunni og fyrir það er greitt fast mánaðargjald. Þannig losna starfsmenn fyrirtækisins við árlega endurnýjun á vírusvörnum og dýra uppsetningu. Mánaðarlegur kostnaður er 490 krónur án VSK á hvern notanda. Stofnkostnaður er breytilegur. Hafðu samband við söluráðgjafa Omnis og fáðu tilboð í vírusvarnarþjónustuna.
Síun á ruslpósti
Eitt stærsta vandamál tölvuheimsins í dag er hið mikla magn af ruslpósti sem daglega kemur inn í pósthólf notenda. Talið er að yfir 95% alls tölvupósts megi skilgreina sem ruslpóst. Það er því ljóst að mjög mikilvægt er að nýta tæknina til að sía ruslpóstinn frá þeim pósti sem notendur vilja fá. Omnis býður viðskiptavinum sínum miðlæga síun á ruslpósti. Öllum pósti er þá vísað inn á mjög öfluga ruslpóstsíu hjá okkur sem nýtir margskonar síunaraðferðir við að taka óæskilegan póst frá og sendir síðan æskilegan póst áfram. Ef æskilegur póstur er síaður frá (kemur stundum fyrir) geta notendur í gegnum vefaðgang hleypt póstinum í gegn og tryggt að póstur frá þessum aðila sé ávalt merktur sem æskilegur. Mánaðarlegur kostnaður er 1.500 krónur án VSK fyrir hvert fyrirtæki (lén).
Verslanir Omnis
![]() |
|
Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915
|
![]() |
|
Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901
|
![]() |
|
Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912
|
![]() |
|
Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914
|









