Kerfishýsing Omnis er rekin úr nýjum kerfissal fyrirtækisins. Þar er boðið upp hýsingu einstakra kerfa, sýndarnetþjóna, gagnasvæði, exchange póstþjónustu og ýmsar öryggisþjónustur svo sem afritunarþjónustu, vírusvarnarþjónustu og síun á ruslpósti. Þessar lausnir er sniðnar að þörfum minni fyrirtækja og þá sérstaklega í verðlagningu þjónustunnar.
Hýsing á kerfum
Omnis býður upp á hýsingu á einstaka kerfum, s.s. DK- viðskiptahugbúnaði, Stólpa, Sage Pastel og fleira. Slíkt getur verið hentugt þegar rekstraröryggi innan fyrirtækisins er takmarkað eða þegar auka þarf aðgengi utanaðkomandi aðila að kerfunum. Aðgengi er þá veitt í gegnum terminal þjónustu.
Exchange póstþjónusta
Exchange póstþjónusta Omnis byggir á Microsoft Exchange 2007 póstþjónum. Með þessum hætti geta viðskiptavinir Exchange póstþjónustu nýtt Microsoft Outlook til að gera miklu meira í tölvupóstskerfinu en áður eins og að deila dagbókum, tengiliðum, verkefnalistum og fleira.
Vírusvarnarþjónusta
Eitt af því mikilvægara sem fyrirtæki þurfa að passa upp á í tölvuumhverfi sínu er að tryggja að vírusar og önnur skyld óværa komist ekki inn í tölvur notenda. Omnis býður fyrirtækjum vírusvarnarþjónustu, sem er einföld og örugg leið til að verja tölvur gegn vírusum. Felst þjónustan í miðlægri dreifingu uppfærslna á vírusvörnum inn á þær tölvur sem eru í þjónustunni og fyrir það er greitt fast mánaðargjald. Þannig losna starfsmenn fyrirtækisins við árlega endurnýjun á vírusvörnum og dýra uppsetningu. Mánaðarlegur kostnaður er 490 krónur án VSK á hvern notanda. Stofnkostnaður er breytilegur. Hafðu samband við söluráðgjafa Omnis og fáðu tilboð í vírusvarnarþjónustuna.
Síun á ruslpósti
Eitt stærsta vandamál tölvuheimsins í dag er hið mikla magn af ruslpósti sem daglega kemur inn í pósthólf notenda. Talið er að yfir 95% alls tölvupósts megi skilgreina sem ruslpóst. Það er því ljóst að mjög mikilvægt er að nýta tæknina til að sía ruslpóstinn frá þeim pósti sem notendur vilja fá. Omnis býður viðskiptavinum sínum miðlæga síun á ruslpósti. Öllum pósti er þá vísað inn á mjög öfluga ruslpóstsíu hjá okkur sem nýtir margskonar síunaraðferðir við að taka óæskilegan póst frá og sendir síðan æskilegan póst áfram. Ef æskilegur póstur er síaður frá (kemur stundum fyrir) geta notendur í gegnum vefaðgang hleypt póstinum í gegn og tryggt að póstur frá þessum aðila sé ávalt merktur sem æskilegur. Mánaðarlegur kostnaður er 1.500 krónur án VSK fyrir hvert fyrirtæki (lén).




