Í fyrirtækjaþjónustu Omnis er að finna góða blöndu af alhliða tæknimönnum og öflugum sérfræðingum sem allir hafa mikla reynslu í ólíkum tæknibúnaði og lausnum. Tæknimenn Omnis eru flestir staðsettir í Ármúla 11 í Reykjavík, en einnig í Reykjanesbæ, á Akranesi, og í Borgarnesi og geta því sinnt öllu suðvesturhorni landsins með skjótum hætti.
Dæmi um verkefni sem þjónustudeildin sinnir:
- Ráðgjöf í högun upplýsingakerfa
- Kerfisúttektir
- Uppsetningar og rekstur netþjóna og útstöðva
- Uppsetning og rekstur gagnageymslulausna
- Netuppsetningar
- Uppsetning á viðskiptahugbúnaði
- Viðgerðir á ljósritunarvélum og öðrum skrifstofutækjum
- Uppsetning á miðlægri þjónustu s.s. afritunarþjónustu, vírusvarnarþjónustu og síun á ruslpósti
- Almenn verkstæðisþjónusta
Þjónustusamningar
Í fyrirtækjum þar sem stjórnendur vilja hafa aðgang að tæknimanni um leið og vandamál kemur upp, er best að gera þjónustusamning. Með þjónustusamning tryggir viðskiptavinurinn sér ákveðna hluti eins og forgangsþjónustu, símaþjónustu, eftirlit og uppfærslur. Þjónustusamningar eru í flestum tilfellum sérsniðnir að þörfum viðskiptavina þannig að allir fái samning sem hentar viðkomandi rekstri.
Verslanir Omnis
![]() |
|
Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915
|
![]() |
|
Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901
|
![]() |
|
Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912
|
![]() |
|
Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914
|









