Í þjónustudeild Omnis er að finna góða blöndu af alhliða tæknimönnum sem hafa mikla reynslu í ólíkum tæknibúnaði og lausnum. Tæknimenn Omnis eru 8 talsins, staðsettir í Reykjanesbæ, á Akranesi, í Borgarnesi og í Reykjavík og geta því sinnt öllu markaðssvæðinu með skjótum hætti. Omnis er vottaður Microsoft Gold Partner sem er æðsta samstarfsvottun Microsoft.
Dæmi um verkefni sem þjónustudeildin sinnir:
- Ráðgjöf í högun upplýsingakerfa
- Kerfisúttektir
- Uppsetningar netþjóna og útstöðva
- Netuppsetningar
- Uppsetning á viðskiptahugbúnaði
- Viðgerðir á ljósritunarvélum og öðrum skrifstofutækjum
- Uppsetning á miðlægri þjónustu s.s. afritunarþjónustu, vírusvarnarþjónustu og síun á ruslpósti
- Almenn verkstæðisþjónusta
Þjónustusamningar
Í fyrirtækjum þar sem stjórnendur vilja hafa aðgang að tæknimanni um leið og vandamál kemur upp, er best að gera þjónustusamning. Með þjónustusamning tryggir viðskiptavinurinn sér ákveðna hluti eins og forgangsþjónustu, símaþjónustu, eftirlit og uppfærslur. Þjónustusamningar eru í flestum tilfellum sérsniðnir að þörfum viðskiptavina þannig að allir fái samning sem hentar viðkomandi rekstri.




