Hjá Omnis færðu allan tölvu- og tæknibúnað sem fyrirtæki þitt þarf. Þar starfar reyndur hópur söluráðgjafa sem aðstoða þig við að velja bestu lausnina hverju sinni. Omnis býður búnað frá öllum helstu framleiðendum heims og vinnur náið með íslenskum dreifingar- og þjónustuaðilum þeirra. Hjá Omnis starfar líka vaskur hópur tæknimanna sem sinna viðskiptavinum Omnis af kostgæfni.
Omnis hefur nú byggt upp kerfissal þar sem rekin er kerfishýsing. Boðið er upp á kerfisleigu, afritunarþjónustu, vírusvarnarþjónustu og síun á ruslpósti.
Hér á síðunni finnur þú upplýsingar um það helsta sem Omnis býður sínum viðskiptavinum, og svo er að sjálfsögðu velkomið að hringja í söluráðgjafa okkar eða senda á þá tölvupóst til að fá nánari upplýsingar um vörur eða þjónustu.
Leturstærð




