Omnis semur við Sveitarfélagið Garð

Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Á dögunum gengu Omnis og Sveitarfélagið Garður formlega frá samningi um rekstur tölvukerfis sveitarfélagsins. Nær samningurinn yfir notendaþjónustu við allra stofnanir sveitarfélagsins, rekstur á miðlægum búnaði og afritun. Starfsmenn Omnis hafa sinnt þessari þjónustu undanfarið ár og er því komin mjög góð reynsla á þjónustuna. Ásmundur Friðriksson sveitarstjóri í Garði er ánægður með samstarfið. „Síðastliðið sumar réðumst við í endurbætur á tölvukerfinu með aðstoð Omnis. Síðan hefur kostnaður við rekstur þess verið í lágmarki. Við erum líka ánægðir með þjónustulipurðina hjá þeim.“  Samningurinn byggir á rammasamningi Ríkiskaupa og Omnis, sem tók gildi á liðnu hausti. Með honum öðlast stofnanir og fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga aðgang að tækniþjónustu Omnis á mjög hagstæðu verði. Bjarki Jóhannesson markaðsstjóri  Omnis  segir samninginn mikla viðurkenningu fyrir starfsmenn fyrirtækisins  í sókn þeirra inná kröfuharðan markað opinberra fyrirtækja.

Verslanir Omnis

Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík

Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi

Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi

Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ

Skilmálar

ATHUGIÐ: Þó svo að starfsmenn Omnis leggja í hvívetna fram við að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar áskiljum við okkur fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.