Ábyrgðarskilmálar

Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

ÁGÆTI VIÐSKIPTAVINUR

Eftirfarandi eru viðskiptaskilmálar á milli þín og OMNIS ehf sem við hvetjum þig til að kynna þér vandlega.

 

GREIÐSLUSKILMÁLAR

Vörur og/eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega. Annar greiðslumáti en skv. meðfylgjandi greiðsluseðlum eða upplýsingum telst ófullnægjandi. Athugasemdir vegna útgefnna reikninga skulu berast fjármálasviði OMNIS ehf innan 30 daga frá útgáfudegi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga.

 

SÖLUVERÐ

Kaupandi vöru veitir OMNIS söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr. 75/1997 um samningsveð. Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/reikningi þessum. Veðið er til tryggingar kröfu OMNIS til alls endurgjaldsins sem greint er í samningi/reikningi þessum, ásamt vöxtum og kostnaði. Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis OMNIS. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur OMNIS leitað fullnustu kröfu sinnar með því að krefjast nauðungarsölu, án undangengins dóms eða aðfarar.

 

VÖRUSKIL

Vöru er einungis hægt að skila í vöruafgreiðslu OMNIS og ber kaupandi ábyrgð á að kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil. Vöru fæst aðeins skilað ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: Varan er sannanlega gölluð. Allar handbækur, fylgihlutir, fylgigögn og umbúðir fylgi með í upprunalegu ástandi. Varan er algjörlega í upprunalegu ásigkomulagi án sjáanlegra skemmda. Innan við 30 dagar eru frá afhendingu vörunnar eða uppgötvunar galla, ef kaupandi vöru sýnir fram á að galli hafi uppgötvast síðar. Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað nema varan sé verulega gölluð. Vöru á kaup-, fjármögnunar- eða rekstrarleigu fæst aðeins skilað í samræmi við ákvæði viðkomandi samnings.

 

UMBOÐSSALA

Omnis getur selt búnað í umboði þriðja aðila. Slíkir aðilar geta borið beina ábyrgð gagnvart viðskiptavinum eða falið Omnis að annast um nauðsynlega þjónustu á ábyrgðartíma búnaðar. Omnis leitast við að tryggja að umboðsviðskiptavinir Omnis fái þjónustu, sem jafnast á við þjónustu Omnis við búnað, sem Omnis selur í eigin nafni.

 

ÁBYRGÐARTÍMI

Í viðskiptum þar sem hið selda eða leigða er ætlað til notkunar í atvinnustarfsemi kaupanda eða leigjanda, er ábyrgðartími 12 mánuðir. Sé um neytendakaup að ræða, gilda reglur laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 um ábyrgðartíma að teknu tilliti til ofangreinds. Ef ábyrgðartími er annar en að framan greinir er þess getið á reikningi.

 

UMFANG ÁBYRGÐAR Á VÉLBÚNAÐI

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð. Á ábyrgðartíma eru lagfæringar OMNIS án endurgjalds á bilunum, sem kunna að verða á búnaði, enda megi rekja þær til framleiðslu og/eða efnisgalla. OMNIS ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni, sem kann að koma upp við notkun hins selda. Ef setja þarf inn stýrikerfi eftir viðgerð á tölvu, er það gert samkvæmt staðli OMNIS um grunnuppsetningu stýrikerfis, þ.e.a.s. án sértækra stillinga í uppsetningu.

 

SÉRSTAKLEGA UM ÁBYRGÐ VEGNA STAÐLAÐS HUGBÚNAÐAR

Staðlaður hugbúnaður er fjöldaframleiddur hugbúnaður án séraðlögunar. OMNIS ábyrgist að uppsetning á hugbúnaði vírki eins og við má búast, í samræmi við kynningarefni hugbúnaðarins, fyrir þá útgáfu hugbúnaðarins sem í boði er á þeim tíma sem salan fer fram og með því stýrikerfi sem tilgreint er. Þegar hugbúnaður er ræstur í fyrsta skipti koma í flestum tilfellum upp samningsskilmálar framleiðanda hugbúnaðarins (EULA = End User License Agreement). Skilmálar teljast samþykktir við opnun og uppsetningu hugbúnaðarins í fyrsta sinn. Áríðandi er að notandi kynni sér samningstextann, en þar kemur meðal annars fram að:

  • Notandi er að kaupa sér afnotarétt (license) að hugbúnaðinum - EKKI eignarrétt.
  • Afnotarétturinn er í sumum tilfellum tímabundinn.
  • Strangar takmarkanir eru á afritun hugbúnaðarins.
  • Hugbúnaðinn skal ekki nota þar sem hætta er á að hann geti valdið stórkostlegum skaða ef upp koma villur við notkun.

 

Óbeint og afleitt tjón sem hugsanlega stafar af notkun hugbúnaðarins eða vegna galla í hugbúnaðinum er ekki á ábyrgð framleiðanda hugbúnaðarins. Eftir opnun og uppsetningu hugbúnaðarins ber OMNIS ekki ábyrgð á honum eða tjóni sem hann getur valdið að öðru leyti en því að skipta honum út, virki hann ekki sem skyldi í samræmi við kynningarefni hugbúnaðarins. Kaupi viðskiptavinur vélbúnað með fyrirfram uppsettum hugbúnaði gilda sömu reglur og að ofan greinir um notkun og ábyrgð hugbúnaðarins frá því viðskiptavinur tekur vélbúnaðinn í notkun.

 

ÁBYRGÐARTAKMARKANIR

Ábyrgð nær ekki til vinnu ef óskað er eftir viðgerð utan auglýsts afgreiðslutíma. Ábyrgð nær ekki til aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma eða ef óskað er eftir viðgerð utan verkstæðis OMNIS. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna OMNIS á vélbúnaði eða uppsetningu stýrikerfis. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar vegna endurheimtingar gagna eða enduruppsetningar notendahugbúnaðar. Eðlilegt slit á rekstrarvörum bætist ekki s.s. á rafhlöðum fartölva, enda ending þeirra í samræmi við það sem búast má við. Kaupandi á engar kröfur á hendur OMNIS vegna eiginleika eða skorts á eiginleikum hins keypta, enda hafði hann möguleika á að kynna sér eiginleika og takmarkanir hins keypta með lestri leiðbeininga eða lýsinga sem fylgja hinu keypta eða eru almennt aðgengilegar, t.d. á vefsíðu OMNIS eða framleiðanda hins keypta. OMNIS ber í engu tilviki ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru afleiddu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði,

hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna.

 

ÁBYRGÐ Á BÚNAÐI FELLUR NIÐUR EF:

Verksmiðjunúmer hefur verið fjarlægt. Búnaðurinn hefur verið tengdur við ranga spennu. Búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski. Búnaðurinn er orðinn slitinn af notkun. Viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en starfsmönnum OMNIS. Átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af. Ábyrgðarinnsigli hefur verið rofið (á við um búnað sem hefur ábyrgðarinnsigli).

 

REGLUR SEM GILDA UM NETVIÐSKIPTI

Rafrænn fjarsölusamningur er jafngildur skriflegum samningi en kaupandi hefur þó rétt til að falla frá kaupunum, án kostnaðar*, í allt að fjórtán daga frá móttöku vörunnar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum: Vörunni sé skilað til fyrirtækisins. Innsigli á búnaði má ekki vera rofið. Búnaðurinn sé óskemmdur og í upprunalegum umbúðum. Að ekki sé um sérpöntun eða sérsniðna vöru að ræða. OMNIS ehf ábyrgist að veittar persónuupplýsingar verða ekki afhentar öðrum né notaðar í öðrum tilgangi en viðkomandi viðskiptum.

 

* Við vöruskil er allur sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda og greiðist alfarið af honum. Þegar sendingarkostnaður er innifalinn í verði vöru á reikningi dregst sendingarkostnaður frá við

endurgreiðsluskv. verðskrá Islandspósts.

 

SKILMÁLAR VEGNA REKSTRAR- OG HÝSINGARÞJÓNUSTU

Skilmála vegna rekstrar- og hýsingarþjónustu er að finna hér og skilmála vegna afritunarþjónustu er að finna á www.vefafritun.is.

 

Verslanir Omnis

Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915

Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901

Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912

Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914

Skilmálar

ATHUGIÐ: Þó svo að starfsmenn Omnis leggja í hvívetna fram við að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar áskiljum við okkur fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.