Janúar 2011
Umfang þjónustu
Omnis veitir þjónustu á sviði upplýsingatækni við ráðgjöf, kerfishönnun, forritagerð, uppsetningu búnaðar, viðhald búnaðar og annað sem nánar er tilgreint í samningi. Þjónusta Omnis kann að vera í stöðluðu formi eða löguð að aðstæðum hverju sinni. Í aðalatriðum er um eftirfarandi samningstegundir að ræða:
Verkefnissamningur, sem gildir um ákveðið verkefni, sem skilgreint er , og gildir á meðan á vinnslu þess stendur. Verkefnissamningur er óuppsegjanlegur á samningstímabili nema ákvæði um riftun eigi við. Viðskiptavinur skal greiða fyrir alla þjónustu, allan búnað og fylgihluti, sem látnir eru té fram til loka samningsins. Ennfremur skal hann greiða útgjöld, sem stofnað hefur verið til og óafgreidd eru á lokadegi samnings.
Samningur um þjónustu, sem getur verið tímabundinn eða ótímabundinn. Tímabundin þjónusta er veitt í skilgreindan tíma og framlengist sjálfkrafa að þeim tíma loknum nema annar hvor samningsaðila segi henni upp. Ótímabundinni þjónustu lýkur, er annar hvor samningsaðila segir henni upp samkvæmt ákvæðum samnings.
Omnis veitir ábyrgðarþjónustu og aukna ábyrgðarþjónustu í samræmi við söluskilmála búnaðar.
Aukaverk eru háð sérstöku samkomulagi og reikningsfærð sérstaklega.
Starfsfólk og undirverktakar
Hvor samningsaðili um sig ber ábyrgð á störfum starfsmanna sinna, er koma að framkvæmd þjónustusamnings. Hvor aðili tilnefnir fulltrúa fyrir sína hönd er annast daglega framkvæmd samnings. Omnis getur að eigin vali ráðstafað starfsfólki sínu til þjónustu samkvæmt samningnum eða fengið til þess undirverktaka eða starfsmenn þriðja aðila. Gerð samnings stendur ekki í vegi fyrir því að Omnis, starfsfólk Omniseða undirverktakar leysi af hendi hliðstæð þjónustuverkefni fyrir aðra aðila.
Hugbúnaður frá öðrum - forritapakkar
Hugbúnaður og leyfisforrit frá öðrum en Omnis seljast á forsendum framleiðandans eða eiganda réttindanna. Yfirleitt er um að ræða sölu á einkaleyfisbundnum, óframseljanlegum réttindum til notkunar þannig að eignaréttur hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttindin til notkunar hans. Heimild til notkunar kann að gilda um ákveðinn umsaminn tíma.
Hugbúnað af þessu tagi má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum, nema um það sé sérstaklega samið. Afritun er háð takmörkunum, er framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur.
Hugbúnaðarþjónusta kann að vera í boði við þessa tegund hugbúnaðar. Framleiðandi hugbúnaðarins eða Omnis í umboði hans veita þá þessa þjónustu eftir því sem skilgreint er í samningi.
Endurgjald
Gjald fyrir vöru og þjónustu Omnis eru listaverð í verðskrám, sérverð eða tilgreind verð í samningi. Öll aukaverk, sem Omnis vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk og ekki er kveðið á um sérstaklega í samningum milli aðila, eru gjaldkræf.
Breytingar á verðskrám
Omnis áskilur sér rétt til breytingar á verðskrám sínum eftir þörfum. Hafi aðilar samið sín á milli um fast verð á gildistíma samnings, breytist það ekki. Omnis áskilur sér rétt til þess að breyta verði vegna notendaleyfa og búnaðar, sem Omnis greiðir fyrir í erlendri mynt, í samræmi við gengisþróun íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Skulu slíkar verðbreytingar tilkynntar viðskiptavini með 30 daga fyrirvara. Við óvenjulegar aðstæður svo sem við gengislækkun á skömmum tíma, er Omnis heimilt að tilkynna viðskipavini um verðbreytingar með skemmri fyrirvara.
Ferðakostnaður og flutningsskilmálar
Í samningi kann að vera kveðið á um greiðslur vegna sérstakra flutningsskilmála eða sérstakrar umsýslu, sem viðskiptavinur kann að óska eftir. Omnis mun upplýsa um slíkt áður en til viðskiptanna er stofnað.
Omnis gerir tilkall til sérstakrar greiðslu fyrir eftirfarandi nema um annað sé samið.
Upptalning er ekki tæmandi:
- Flutning á búnaði frá húsakynnum Omnis á umbeðinn stað.
- Flutning á búnaði vegna viðgerða.
- Ferðakostnað og ferðatíma vegna þjónustu á stöðum, þar sem Omnis hefur ekki að staðaldri starfsfólk, sem þjálfað er til að veita þjónustu við hlutaðeigandi búnað.
- Vinnutíma og ferðakostnað vegna aðgerða, sem falla utan umsamins þjónustutíma.
- Vinnutíma á ferðum og ferðalögum, ferðakostnað og flutningsgjöld, sem falla utan við umsamda þjónustu við búnað.
- Ferðakostnað og ferðatíma vegna búnaðar, sem fellur undir viðgerðar- og útskiptiþjónustu.
- Ferða- og flutningskostnað vegna ábyrgðarþjónustu búnaðar, sem ætlaður er til þjónustu á verkstæði Omnis.
Reikningar
Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á að greiðslur fyrir vörur og búnað berist Omnis á réttum tíma.
Athugasemdir skulu gerðar við útgáfu reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga þeirra. Teljast reikningar ella samþykktir af hálfu viðskiptavinar. Hafi athugasemdir viðskiptavinar borist eftir eindaga og atvik réttlæta með ótvíræðum hætti, að athugasemdir bárust ekki í tæka tíð, mun Omnis taka afstöðu til þeirra athugasemda.
Reikningar skulu greiddir eigi síðar en á eindaga. Skal Omnis sjá svo um, að reikningar séu sendir viðskiptavini með góðum fyrirvara eða birtir honum á annan hátt samkvæmt samkomulagi aðila.
Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti af reikningnum í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.
Skyldur og réttindi aðila
Þáttur viðskiptavina
Viðskiptavini ber að koma upp viðeigandi uppsetningarumhverfi fyrir hverja vél í samræmi við leiðbeiningar framleiðenda eða Omnis og veita Omnis nauðsynlegan aðgang að vélbúnaði.
Viðskiptavini ber að veita Omnis nægar upplýsingar svo sannreyna megi vinnsluhæfni búnaðar í viðeigandi uppsetningarumhverfi.
Áður en viðskipavinur leitar eftir þjónustu hjá Omnis ber honum að framkvæma villuleitaraðgerðir, sem framleiðandi eða Omnis hafa mælt fyrir um, gera nauðsynlegar ráðstafanir til verndar hugbúnaði, gagnaefni og verðmætum, sem um er að ræða í vélbúnaði og fjarlægja (ef um útskiptingu er að ræða) alla flytjanlega geymslumiðla og annan búnað, sem heyrir ekki vélbúnaðinum til.
Viðskiptavini er óheimilt að taka í sundur hugbúnað sem honum er látinn í hendur af Omnis eða stuðla að nokkrum breytingum á honum.
Í almennum viðskiptum við Omnis er gengið út frá því að viðskiptavinir séu ásáttir um eftirfarandi:
- Að veita Omnis greiðan aðgang að búnaði eftir afhendingu í þeim tilgangi að uppfylla skyldur sínar samkvæmt samningum aðila.
- Að lána ekki búnað, samnýta ekki eða gefa þriðja aðila aðgang að búnaði án skriflegs samþykkis Omnis.
- Að framselja ekki samning eða samningsbundin réttindi við Omnis til þriðja aðila án áður gerðs samþykkis.
- Að selja ekki ógreiddan búnað frá Omnis, framselja hann ekki né veðsetja eða ráðstafa honum á nokkurn þann hátt, sem fer í bága við eignarrétt Omnis.
- Að nota búnað frá Omnis aðeins í eigin þágu og afla hans ekki í því augnamiði að selja hann, leigja eða lána án áður gerðs samþykkis.
- Að heimila Omnis að setja í búnað tæknibreytingar, sem Omnis telur nauðsynlegar til dæmis af öryggisástæðum. Fjarlægðar búnaðareiningar verða eign Omnis. Starfshæfi búnaðar eftir breytingar skal ekki skerðast.
- Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á þeim árangri, sem næst af notkun búnaðar og þjónustu frá Omnis.
- Að samningstíma loknum lokast aðgangur að netþjónum og öðrum tækjabúnaði Omnis án tafar. Ber viðskiptavinur því ábyrgð á að afrita öll gögn í sinni eigu, sem vistuð eru hjá Omnis áður en samningar renna út eða þeim er sagt upp.
- Að bjóða ekki starfsmönnum Omnis, sem tengst hafa þjónustusamningi, stöðu í eigin fyrirtæki á samningstíma og innan 12 mánaða frá því að verkefnissamningi lauk nema að höfðu samráði við Omnis.
- Að geta einkaréttindayfirlýsingar sinnar með greinilegum hætti á öll eintök leyfisforrita, sem notuð eru í fyrirtæki hans samkvæmt sérstökum samningi.
- Að fara að landslögum og opinberum stjórnvaldsákvörðunum.
Sérstök réttindi Omnis
Omnis áskilur sér rétt til að fjarlægja efni af vélbúnaði Omnis, sem brýtur gegn lögum og reglum.
Omnis áskilur sér rétt til þess að synja viðskiptavini um þjónustu og frekari kaup á búnaði, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 30 daga frá eindaga.
Omnis áskilur sér rétt til þess að synja viðskiptavini um aðgang að gögnum, sem vistuð eru á búnaði Omnis, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 60 daga frá eindaga.
Omnis áskilur sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavinar, sem vistuð eru á búnaði Omnis, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 150 daga frá eindaga.
Ábyrgð á þjónustu
Omnis kappkostar að uppfylla væntingar viðskiptavina til gæða veittrar þjónustu.
Kaup neytenda á þjónustu frá Omnis, þ.e. einstaklinga, sem eru kaupendur þjónustu og kaupin eru ekki í atvinnuskyni eða í tengslum við starf þeirra, eru háð lögum um þjónustukaup, nr. 42/2000, þar sem ákvæði laganna eru neytendum hagstæðari en ákvæði skilmála þessara, sérskilmála eða samninga.
Reikningur fyrir þjónustu gildir sem ábyrgðarskírteini og hefst ábyrgðartími, þegar þjónustan er innt af hendi eða við dagsetningu reiknings, hvort sem fyrr er enda hafi reikningurinn verið greiddur að fullu
Telji viðskiptavinur, að þjónusta súsem Omnis veitir sé gölluð skal hann tilkynna stjórnendum Omnis það um leið og hann verður þess áskynja,
Hafi aðrir aðilar en Omnis gert breytingar á vélbúnaði eða hann verið starfræktur með yfirálagi, getur Omnis synjað um þjónustu.
Áður en viðskiptavinur biður um þjónustu skal hann framkvæma bilanagreiningu og villuleitandi aðgerðir, sem framleiðandi búnaðar og /eða Omnis hafa mælt fyrir um.
Omnis innir ábyrgðarþjónustu af hendi á verkstæði sínu á auglýstum opnunartíma nema um sé að ræða stærri búnað eða umfangsmiklar samsetningar, sem ekki verða með auðveldum hætti færðar úr stað.
Ábyrgð og þjónusta við hugbúnað, sem er þróaður af Omnis, er háð því að notkun hugbúnaðar og þjónustu hafi verið í samræmi við kerfisskrárlýsingar Omnis, handbækur og aðrar leiðbeiningar um notkun. Omnis ábyrgist ekki, að hugbúnaður vinni villulaust, án reksturstruflana eða að allar villur hafi verið lagfærðar. Omnis ber framleiðandaábyrgð á hugbúnaði, sem starfsmenn fyrirtækisins hafa þróað.
Ábyrgð á þjónustu gildir aðeins á Íslandi nema um annað hafi verið samið.
Trúnaður
Öll gögn og upplýsingar sem Omnis verður vísari um viðskiptavin og skjólstæðinga hans skal vera trúnaðarmál.
Viðskiptavinur skal á sama hátt gæta fyllsta trúnaðar um gögn og upplýsingar er varða Omnis. Upplýsingar skal aðeins nota í þeim tilgangi sem þær voru fengnar og að því marki sem nauðsynlegt er við framkvæmd samningsins.
Aðilar skuldbinda sig til að ljóstra ekki upp trúnaðarupplýsingum sem þeir hafa móttekið frá gagnaaðila, þ.m.t. upplýsingum um stjórnunarlegar, fjárhagslegar eða tæknilegar aðstæður gagnaðila, aðrar aðstæður varðandi rekstur, viðskipti eða atriði sem ætla má að teljist trúnaðarupplýsingar, sem halda ber leyndum.
Upplýsingar, sem eru eða ætla má að séu á allra vitorði eða öllum aðgengilegar, teljast ekki trúnaðarupplýsingar, nema slíkar aðstæður stafi af broti á þessu ákvæði. Þagnarskylda skal gilda áfram eftir að samningi lýkur.
Framsal
Aðilum er óheimilt að framselja réttindi og skyldur sem samningur þeirra hefur í för með sér nema að fengnu skriflegu samþykki gagnaðila. Þó er aðilum heimilt að framselja réttindi og skyldur til dótturfyrirtækja sem þeir eiga að öllu leyti, svo fremi að viðeigandi leyfi séu framseld til viðtakandi fyrirtækis. Efni framsalshafi ekki skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum skal framseljandi bera ábyrgð á réttum efndum hans gagnvart gagnaðila.
Óviðráðanleg atvik
Omnis og samningsaðilar Omnis eiga engan rétt til skaðabóta, þegar vanefndir orsakast af óviðráðanlegum atvikum, sem ekki eru til staðar við samningsgerð (Force Majeure) svo sem vinnudeilum, styrjöldum, uppreisnum, náttúruhamförum, aðgerðum stjórnvalda á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabönnum, hafnbönnum, almennum samgönguhindrunum, orkuskorti og óviðráðanlegum atvikum í samskiptum við undirverktaka.
Riftun
Báðir samningsaðilar geta rift samningi án fyrirvara, ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu hins aðilans í samræmi við almennar reglur. Omnis getur til viðbótar venjulegum vanefndaheimildum m.a. rift samningi vegna vanefnda, ef:
- Viðskiptavinur greiðir ekki reikninga Omnis vegna umsaminnar og veittrar þjónustu innan 30 daga eftir eindaga.
- Viðskiptavinur uppfyllir ekki samningsbundnar skyldur sínar við Omnis innan 30 daga frá dagsetningu skriflegrar tilkynningar frá Omnis um efnisatriði málsins.
- Viðskiptavinur notar búnað með öðrum hætti en notkunarskilmálar eða aðrar útgefnar leiðbeiningar um meðferð hans kveða á um.
- Viðskiptavinur notar búnað umfram það, sem Omnis skilgreinir sem hámarksnotkun á tilgreindu tímabili.
- Viðskiptavini er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður gjaldþrota.
- Aðrir en starfsmenn Omnis hafa án samþykkis Omnis veitt hinum tiltekna búnaði þjónustu.
- Verði samningi rift af hálfu Omnis ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningum auk alls kostnaðar.
Þá getur Omnis gripið til eftirfarandi aðgerða séu forsendur til riftunar vegna vanefnda til staðar:
- Sagt upp þjónustusamningi að hluta eða í heild.
- Tekið hugbúnað í sína vörslu eða gert hann ónothæfan.
- Innheimt allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar leigugreiðslur samkvæmt viðkomandi samningi.
- Beitt öðrum vanefndaúrræðum eftir því sem við á.
Viðskiptavinur skal halda Omnis skaðlausum af öllum útgjöldum og tekjumissi, sem Omnis kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á þjónustusamningi.
Lög og varnarþing
Samningar Omnis við viðskiptavini og almennir skilmálar þeim tengdir falla undir íslensk lög. Skulu undanþæg ákvæði laganna víkja fyrir samningum þessum og skilmálum samrýmist þau þeim ekki. Leiði lög um neytendakaup eða lög um þjónustukaup með ófrávíkjanlegum hætti til hagstæðari kjara fyrir viðskiptavini en samningar þessir og skilmálar kveða á um, skulu þau lög gilda. Rísi mál út af viðskiptasamningum Omnis og/eða Almennum skilmálum félagsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Verslanir Omnis
![]() |
|
Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915
|
![]() |
|
Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901
|
![]() |
|
Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912
|
![]() |
|
Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914
|









