Breadcrumbs
Home / Um OmnisOmnis er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki með meginstarfsemi í Reykjanesbæ, á Akranesi og í Borgarnesi. Fyrirtækið rekur þrjár verslanir og verkstæðisþjónustu fyrir einstaklinga á þessum svæðum, en er auk þess með öfluga fyrirtækjaráðgjöf og tækniþjónustu sem sinnir fyrirtækjum á Vesturlandi og Suðurnesjum. Omnis er einnig með útibú í Reykjavík enda er fyrirtækið að sinna tækniþjónustu fyrir fjölmarga viðskiptavini á höfuðborgarsvæðinu.
Omnis leggur áherslu á að bjóða tæknibúnað og hugbúnaðarlausnir frá öllum helstu framleiðendum heims og vinnur náið með íslenskum dreifingar- og þjónustuaðilum þeirra. Má þar nefna Opin Kerfi, EJS og Nýherja. Omnis er umboðsaðili Símans á Suðurnesjum og Vesturlandi. Hjá fyrirtækinu starfa 20 manns.
Omnis ehf
Dalbraut 1 300
Akranes kt 560902-2390
Framkvæmdastjóri: Eggert Herbertsson
Formaður stjórnar: Bjarki Jóhannesson




