Omnis og Upplýsingatæknifélagið UTF sameinast

Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Á dögunum undirrituðu forsvarsmenn Omnis ehf. og Upplýsingatæknifélagsins ehf.(UTF) samkomulag um sameiningu félaganna og verður nafn sameinaðs félags, Upplýsingatæknifélagið Omnis ehf.

UTF hefur á að skipa öflugu starfsfólki með mikla þekkingu og reynslu í tækniþjónustu við fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu en Omnis rekur hýsingarþjónustu, tækniþjónustu og verslanir á Akranesi, í Borgarnesi og í Reykjanesbæ. Starfsemi fyrirtækjanna fellur því vel saman.

Þá hefur verið ákveðið að tækniþjónusta fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu flytjist í nýtt húsnæði að Ármúla 11 í Reykjavíkog þar verður einnig opnuð glæsileg tölvuverslun og tölvuhjálp fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki. Hjá sameinuðu fyrirtæki munu starfa um 30 manns. Upplýsingatæknifélagið Omnis hefur góða stöðu hjá helstu framleiðendum tæknibúnaðar í heiminum, bæði hvað varðar sölu og þjónustu. Það er til dæmis viðurkennt sem Microsoft Gold Certified Partner og HP Preferred Partner, EMC partner, DELL partner, Apple partner og Cisco partner.

Framkvæmdastjóri félagsins verður Eggert Herbertsson. Eggert segir sameiningu fyrirtækjanna og opnun verslunar í Reykjavík verða mikla lyftistöng fyrir félagið. Það hafi löngum verið stefna Omnis að auka starfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu sem nú sé að takast með kröftugum hætti.

Verslanir Omnis

Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915

Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901

Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912

Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914

Skilmálar

ATHUGIÐ: Þó svo að starfsmenn Omnis leggja í hvívetna fram við að hafa allar upplýsingar á síðunni réttar áskiljum við okkur fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.