Á dögunum gengu Omnis og Sveitarfélagið Garður formlega frá samningi um rekstur tölvukerfis sveitarfélagsins. Nær samningurinn yfir notendaþjónustu við allra stofnanir sveitarfélagsins, rekstur á miðlægum búnaði og afritun. Starfsmenn Omnis hafa sinnt þessari þjónustu undanfarið ár og er því komin mjög góð reynsla á þjónustuna. Ásmundur Friðriksson sveitarstjóri í Garði er ánægður með samstarfið. „Síðastliðið sumar réðumst við í endurbætur á tölvukerfinu með aðstoð Omnis. Síðan hefur kostnaður við rekstur þess verið í lágmarki. Við erum líka ánægðir með þjónustulipurðina hjá þeim.“ Samningurinn byggir á rammasamningi Ríkiskaupa og Omnis, sem tók gildi á liðnu hausti. Með honum öðlast stofnanir og fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga aðgang að tækniþjónustu Omnis á mjög hagstæðu verði. Bjarki Jóhannesson markaðsstjóri Omnis segir samninginn mikla viðurkenningu fyrir starfsmenn fyrirtækisins í sókn þeirra inná kröfuharðan markað opinberra fyrirtækja.
Verslanir Omnis
![]() |
|
Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915
|
![]() |
|
Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901
|
![]() |
|
Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912
|
![]() |
|
Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914
|








