Omnis hefur gert samkomulag við Thor Data Center (TDC) um það að fyrrnefnda fyrirtækið færi hýsingar- og afritunarþjónustu sína í gagnaver TDC og þrói hýsingarlausnir sínar þar. Fyrirtækin munu í sameiningu þróa þjónustu og lausnir sem Omnis mun bjóða á íslenskum markaði. TDC mun nú fyrst og fremst einbeita sér að viðskiptavinum erlendis og er verkefnastaða félagsins í þeim efnum góð. Erlendir viðskiptavinir TDC þurfa oft á tíðum að hafa aðgang að tækniþjónustu ýmiskonar og er það hluti af samkomulaginu að Omnis sinni að miklu leiti þeim verkefnum fyrir hönd TDC. Eggert Herbertsson, framkvæmdastjóri Omnis, segir þetta skref mikilvægt í uppbyggingu hýsingarþjónustu fyrirtækisins, sérstaklega við að uppfylla öryggiskröfur nútímans. Samkomulagið við TDC styrki einnig þá stefnu Omnis að verða þjónustuaðili fyrir erlenda viðskiptavini gagnavera. Þar liggi mikil tækifæri á næstu misserum.
Verslanir Omnis
![]() |
|
Reykjavík
Ármúla 11, 108 Reykjavík
Beinn simi: 444 9915
|
![]() |
|
Akranesi
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Beinn simi: 444 9901
|
![]() |
|
Borgarnesi
Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi
Beinn simi: 444 9912
|
![]() |
|
Reykjanesbæ
Tjarnargötu 7, 230 Reykjanesbæ
Beinn simi: 444 9914
|








